Færsluflokkur: Bloggar
Laugardagur, 9. júní 2018
VG er að framkvæma stefnumál Sjálfstæðisflokksins!
Hér skulu nefnd nokkur mál,sem hafa verið stefnumál Sjálfstæðisflokksins og ríkisstjórn Katrínar hefur tekið upp og gert að sínum:
1. Krónu móti krónu skerðing hjá öryrkjum í kerfi almannatrygginga.Því var lofað að afnema þessa skerðingu um áramótin 2016/2017 við gildistöku nýrra laga um TR.Það var svikið en lofað að það yrði leiðrétt fljótlega. Ríkisstjórn Framsóknar og íhalds sveik þetta.Í stað þess að ríkisstjórn Katrínar mundi leiðrétta málið og afnema krónu móti krónu skerðinguna hjá öryrkjum viðheldur hún henni,þ.e. framkvæmir stefnu íhaldsins (og framsóknar).
2.Sjálfstæðisflokkurinn kom því inn í stjórnarsáttmálann,að ekki væri grundvöllur fyrir kauphækkunum vegna mikilla hækkana undanfarin misseri.Andrés Ingi Jónsson þingmaður VG sagði þegar hann sá þetta ákvæði,að hann hefði haldið að það hefði verið samið í Viðskiptaráði!
3.Sjálfstæðisflokkurinn hefur viljað lækka veiðigjöldin en Katrín Jakobsdóttir lýsti því yfir í forustusæti sjónvarpsins rétt fyrir síðustu þingkosningar ,að hækka ætti veiðigjöld til þess að auka jöfnuð í þjóðfélaginu.Nú flutti VG (Lilja Rafney Magnúsdóttur) frumvarp um mikla lækkun veiðigjalda,tæpa 3 milljarða( hefði fært Granda 200 millj kr lækkun).VG tók upp stefnu Sjálfstæðisflokksins í málinu.
4. VG sagði fyrir síðustu þingkosningar í stefnu sinni,að bæta ætti kjör aldraðra og öryrkja.Nú er það gleymt og stefna ihaldsins,sem ekki vill hækka lífeyri aldrara og öryrkja, hefur verið tekin upp.
Katrín Jakobsdóttir segir í viðtali við Fréttablaðið í dag,að hún sé ánægð með samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn. Hún nefnur m.a. sem ánægjuleg mál,ferðir til Frakklands og Þýzkalands.Já hégóminn skiptir miklu máli.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 8. júní 2018
VG á að slíta ríkisstjórninni strax!
Fréttir,sem birtust í gær,um mikla ólgu (óánægju) innan grasrótar VG, komu ekki á óvart.Fylgi VG hrapaði mikið í sveitarstjórnarkosningunum og samkvæmt síðustu skoðanakönnun Gallup um landsfylgi er fylgi VG búið að falla úr 20% í 13%.Á sama tíma hefur fylgi Samfylkingar aukist í 18%.Hvers vegna hefur fylgi VG hrapað? Það er vegna þess,að flokkurinn hefur engum stefnumálum komið fram og ekki nóg með það.Flokkurinn hefur verið að framkvæma stefnumál Sjálfstæðisflokksin. Skýrasta dæmið um það er frumvarp Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur þingmanns VG um lækkun veiðigjalda (lækkun hjá Granda um 200 millj. kr.)Það hefur verið stefna Sjálfstæðisflokksins að lækka veiðigjöldin en Katrín Jakobsdóttir sagði í forustusætinu í sjónvarpinu fyrir þingkosningar síðasta haust að hækka ætti veiðigjöldin til þess að auka jöfnuð í þjóðfélaginu.Hún gerir þveröfugt í ríkisstjórninni.-Það var stefna VG í kosningunum síðasta haust að bæta ætti kjör aldraðra og öryrkja.En ríkisstjórn Katrínar hefur ekki bætt kjör þessara aðila um eina krónu.Það litla sem lífeyrir hækkaði um síðustu áramít (4,7%) hafði verið ákveðið löngu áður og var minna en hækkun launavísitölu.
Stefna Sjálfstæðisflokksins er að halda lífeyri og lægstu launum niðri.Flokknum tókst að koma því stefnumáli inn í stjórnarsáttmálann.Andrés Ingi Jónsson þingmaður VG sagði,þegar hann sá orðalagið,að hann hefði talið,að það hefði verið samið hjá Viðskiptaráði! Í stuttu máli sagt: VG hefur verið að framkvæma stefnu Sjálfstæðisflokksins.
Eðward Hákon Huijbens varaformaður VG segir,að óánægjan í grasrót VG sé meiri nú en þegar umræðan um vantraust á dómsmálaráðherra fór fram en þá hjálpaði VG Sjálfstæðisflokknum og kom í veg fyrir,að vantraust væri samþykkt á dómsmálaráðherra þó það væri þingmönnum VG þvert um geð eftir það,sem á undan var gengið.Varaformaðurinn segir,að óánægjan sé mikil.Það er ekki nema eitt svar við henni: VG á að slíta stjórninni strax.VG hefur ekkert í þessari stjórn að gera,kemur engum stefnumálum sínum fram og gerir ekkert annað en hjálpa Sjálfstæðisflokknum.Það er ljóst,að hégóminn einn hefur leitt Vg inn í þessa ríkisstjórn,þe. sá hégómi að fá stól forsætisráðherra og þau hlunnindi sem því fylgja.En það gagnast ekki VG.Slíkur hégómi gagnaðist ekki Halldóri heitnum Ásgrímssyni,þegar Davíð Oddsson gerði hann að forsætisráðherra og hann gagnast ekki Katrínu eða VG. Skynsamlegast er því fyrir VG að slíta stjórninni áður en meiri skaði er skeður.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 7. júní 2018
MIKIL ÓLGA INNAN GRASRÓTAR VG!
Fréttablaðið segir þvert yfir forsíðu í dag í 4ra dálka fyrirsögn,að mikil ólga sé í grasrót VG vegna framlagningar flokksins á frumvarpi um að stórlækka veiðigjöldin þar á meðal hjá stórútgerðinni.Lilja Rafney Magnúsdóttiir þingmaður VG lagði frumvarpið fram og gekk þar með í ....verkin fyrir íhaldið en Kristján Þór Júlíusson úr Sjálfstæðisflokki er sjávarútvegsráðherra og var "stikk frí",horfði á.Rétt fyrir þingkosningar var Katrín Jakobsdóttir í forustusætinu hjá Sjónvarpinu og sagði þá ,að hækka ætti veiðigjöldin til þess að auka jöfnuð í þjóðfélaginu.Hún og Lilja Rafney eru að gera þveröfugt með veiðigjaldafrumvarpinu; þær eru að lækka veiðigjöldin og mest á stórútgerðinni svo sem Granda og Samherja.Varaforrmaðurr VG,Eðward Hákon Huijbens segir,að ólgan í grasrót VG sé meiri nú en þegar vantraust á dómsmálaráðherra var í umræðunni.Áreiðanlega hefur ólgan innan VG aukist í kjölrfar ófara VG í sveitarstjórnrkosningunum.VG tapaði miklu fylgi í þeim,einkum í Rvk en einnig í Hafnarfirði,Kópavogi og víðar. Það er einnig mikil óánægja með það,að VG hefur ekki komið neinum stefnumálum sínum fram: það er eins og íhaldið ráði öllu í ríkisstjórninni. VG hefur .t.d ekki hækkað lífeyri aldraðra og öryrkja um eina krónu enda þótt lægsti lífeyrir aldraðra og öryrkja sé við fátæktarmörk og engin leið að lifa af honum.Menn skilja ekki hvað VG er að gera í þessari ríkisstjórn; það er ekki fyrir þá,sem höllum fæti standa í þjóðfélaginu; það er ekki til þess að koma stefnumálum VG fram.Það virðist vera fyrir það eitt að fá stól forsætisráðherra.Það er fyrir hégómann!
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 4. júní 2018
Lægst launuðu öldruðum ekki veitt full aðild að samfélaginu!
Hvers vegna er lægst launuðu öldruðum og öryrkjum ekki veitt full aðild að samfélaginu. Með því að skammta lægst launuðu öldruðum og öryrkjum algera hungurlús í lífeyri er verið að koma í veg fyrir að þessir aðilar geti tekið fulla aðild að samfélaginu.Þeir gætu ekki átt og rekið bíl; þeir gætu ekki keypt tölvu og borgað af henni; þeir gætu ekki farið í leikhús eða á tónleika.En það þýðir,að þeir geta ekki tekið fullan þátt í samfélaginu.Það má bæta því við,að þeir eiga einnig erfitt með að kaupa gjafir handa börnum sínum og barnabörnum. En hvers vegna eru stjórnvöld að halda lægst launuðu öldruðum og öryrkjum utan við fulla aðild að samfélaginu? Það er ekki vegna fjárskorts.Þessa daga ætlar ríkisstjórn Katrína að færa tæpa 3 milljarða til kvótakónganna,til útgerðrinnar með því að lækka veiðigjöldin um þessa fjárhæð.Þessa fjárhæð mætti færa til lægst launuðu aldraðra og öryrkja.En það vantar viljann.Logi Einarsson sýndi fram á það á alþingi fyrir helgi,að það er aðeins stutt frá því Svandís Svavarsdóttir ráðherra barðist fyrir því að veiðigjöldin yrðu hækkuð en ekki lækkuð.Samkvæmt því er ljóst,að það er Sjálfstæðisflokkurinn sem stjórnar því,að það er verið að lækka veiðigjöldin nú um 3 milljarða.VG dinglar með.-Það er tímabært að VG og allir á alþingi vakni og leiðrétti kjör aldraðra og öryrkja.Það er tímabært að lægst launuðu öldruðum og öryrkjum verði veitt full aðild að samfélaginu.Alþingi ber bók staflega skylda til þess. Ríkisstjórninni ber skylda til þess.Það er mannréttindabrot að halda lægst launuðu öldruðum og öryrkjum utan við fulla aðild að samfélaginu.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 31. maí 2018
Afnema þarf skerðingu TR vegna lífeyrissjóða!
Það er athyglisvert,að enginn stjórnmálaflokkur sker sig úr á alþingi í baráttu fyrir bættum kjörum eldri borgara.Enginn flokkur berst svo vasklega fyrir eldri borgara, að aldraðir geti sagt án þess að hika: Þetta er flokkurinn okkar.Þeir flokkar, sem bera hag aldraðra fyrir brjósti, verða því að taka sig verulega á. Það er vissulega mikil þörf á því í dag, að þeir geri það.Ríkisstjórnin er aðgerðarlaus i þessum málaflokki.Og stjórnarandstaðan stendur sig heldur ekki nógu vel.
Lífeyrir dugar ekki fyrir framfærslukostnaði!
Hvað er brýnast að gera í málum eldri borgara?
Það er þetta: Það þarf að hækka lífeyri aldraðra frá almannatryggingum verulega.Lífeyrir almannatrygginga er svo naumt skammtaður, að þeir eldri borgarar, sem einungis hafa tekjur frá Tryggingastofnun hafa ekki nóg fyrir framfærslukostnaði.Einhverjir útgjaldaliðir verða því alltaf útundan og oftast verða það annað hvort lyf eða lækniskostnaður eða báðir þessir liðir.Stundum gerist það síðustu daga mánaðarins, að ekki er nóg fyrir mat.Þá verður viðkomand eldri borgari að leita til ættingja eða hjálparstofnana. Það eru þung spor.Þetta er að sjálfsögðu óviðunandi ástand; þetta er mannréttindabrot.Ríkisstjórnin getur ekki skammtað öldruðum svo naumt, að þeir hafi ekki fyrir framfærslukostnaði.Ríkisstjórnin veit af þessu. Ég skrifaði forsætisráðherra bréf um þetta mál í byrjun ársins og formaður Félags eldri borgara snéri sér til forsætisráðherra út af sama máli nokkru síðar. En samt gerir ríkisstjórnin ekkert í málinu!
425 þúsund á mánuði fyrir skatt lágmark
Hvað þarf lífeyrir aldraðra að vera hár til þess að hann dugi til framfærslu? Að mínu mati er lágmarkslífeyrir þessi: 425 þúsund kr á mánuði fyrir skatt.311 þúsund kr á mánuði eftir skatt.Ekki á að gera mun á einhleypum og giftum eldri borgurum að því er lífeyri varðar.Framangreindur lífeyrir er algert lágmark til þess að eldri borgarar hafi fyrir nauðsynlegustu útgjöldum. Þetta dugar þó tæplega, ef eldri borgarinn þarf að greiða mikið í húsnæðiskostnað, til dæmis háa húsaleigu eða miklar afborganir og vexti af íbúð. Einnig er ókleift að kaupa og reka bíl af lífeyri, sem eingöngu er frá TR.Hann hrekkur ekki til þess.
Miklar skerðingar lífeyris TR
Þeir,sem hafa lágan lífeyri úr lífeyrissjóði eru lítið betur settir en hinir, sem eingöngu hafa lífeyri frá almannatryggingum.Húsnæðiskostnaður skiptir gífurlega miklu máli fyrir eldri borgara. Þeir, sem eiga skuldlaust eða skuldlítið húsnæði, eru miklu betur staddir en hinir.Þeir geta veitt sér meira á efri árum.Þeir, sem hafa góðan lífeyrissjóð, eru einnig betur settir en hinir sem hafa engan lífeyrissjóð eða mjög lélegan en þeim svíður, að ríkið skuli refsa þeim fyrir að hafa sparað i lífeyrissjóði.Ríkið skerðir lífeyri aldraðra frá TR hastarlega, ef þeir hafa greitt í lífeyrissjóð.Það gengur í berhögg við yfirlýsingar, sem voru gefnar, þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir.En þá var sagt, að lífeyrissjóðirnir ættu að vera hrein viðbót við almannatryggingar.Þessu lýsti m.a. ASÍ yfir 1969. Þegar ríkið skerðir tryggingalífeyri eldri borgara frá TR í dag finnst umræddum eldri borgurum sem þeir hafi verið sviknir.Það er brýnt að afnema skerðingu tryggingalífeyris vegna lífeyrissjóða sem fyrst. Margir álíta að afnema eigi skerðingarnar í einum áfanga, þar eð ríkið hafi haft mikinn ávinning af skerðingum svo lengi og þessar skerðingar eigi ekki rétt á sér. Ég tek undir það.
Kostar 35 miljarða að afnema allar skerðingar
Dr. Haukur Arnþórsson hefur rannsakað skerðingarnar og skrifað mikið um þær.Hann telur,að það sé ekki eins dýrt fyrir ríkið að afnema þær eins og talið hefur verið. Hann telur,að það kosti ríkið 35 milljarða kr. að afnema alveg allar skerðingar tryggingalífeyris vegna annarra tekna.En auk þess telur hann, það vanti svipaða upphæð upp á, ,að greiðslur ríkisins hér til eftirlauna nái meðaltali slíkra opinberra greiðslna í OECD ríkjunum.Þessar tölur dr. Hauks setja málið alveg í nýtt ljós.Það er ekki lengur spurning um það hvort ríkið ráði við það að afnema skerðingar vegna lífeyrissjóða.Ríkinu ber bókstaflega skylda til þess. Spurningin er fremur hvort afnema eigi allar skerðingar eða einungis vegna lífeyrissjóða..Miðað við OECD hefur íslenska ríkið hlunnfarið eftirlaunamenn hér um sömu upphæð og það kostar að afnema allar skerðingar.
Björgvin Guðmundsson
Fréttablaðið 31.mai 2018
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 8. maí 2018
Samfylkingin vinnur á í Rvk
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins,sem tekin var í gær er Samfylkingin að vinna á.Flokkurinn fengu 30,5% og 8 borgarfulltrúa,ef kosið væri nú.Sjálfstæðisflokkurinn fengi 22,4% og 6 borgarfulltrúa.VG fengi 11% og 3 fulltrúa, ,Viðreisn 8% og 2 fulltrúa,Piratar 7,5% og 2 fulltrúa og Miðflokkurinn 7% og 2 fulltrúa..Flokkur fólksins 2,8%,Framsókn og Kvennaframboð 2,5%,Framboð Sveinbjargar Birnu 1% en önnur framboð minna en 1%. -Samkvæmt þessu héldi núverandi meirihluti,Samfylkingar,VG og Pirata velli,fengi 13 fulltrúa af 23.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 8. maí 2018
Búið að stórskaða almannatryggingarnar!
Árið 1946 voru almannatryggingar stofnaðar af ríkisstjórn Alþýðuflokksins,Sjálfstæðsflokksins og Sósialistaflokksins en sú stjórn var undir forustu Ólafs Thors formanns Sjálfstæðisflokksins.Þegar tryggingingunum var komið á fót, lýsti Ólafur Thors því yfir,að tryggingarnar ættu að vera fyrir alla óháð stétt og efnahag og að þær ættu að vera í fremstu röð slíkra trygginga í Vestur-Evrópu.Almannatryggingarnar stóðu undir nafni fyrstu árin og þær voru þá í fremstu röð en síðan drógust þær aftur út og í dag reka þær lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum.Það er búið að stórskaða almannatryggngarnar á Íslandi Um áramótin 2016/2017 var grunnlífeyrir felldur niður.Ríkisstjórn framsóknar og Sjálfstæðisflokks stóð fyrir því.Það gekk algerlega í berhögg við að almannatryggngarnar væru fyrir alla.En almannatryggingar á Norðuröndum eru fyrir alla, ekki fátæktarframfærsla eins og Framsókn og Sjálfstæðisflokkur vija hafa tryggingarnar.Þess breyting svo og að lífeyrir dugar ekki til framfærslu (hjá þeim,sem ekki hafa lífeyrissjóð) þýðir,að Íslendingar hafa horfið frá norræna velferðarmodelinu.Það hefur verið horfið frá upphaflegu markmiði almannatrygginga,að þær væru fyrir alla.Hægri menn í dag vilja hafa almannatryggingarnar sem fátæktarframfærslu en ekki í anda upphaflegs markmiðs trygginganna og ekki i anda norræna velferðarmodelsins.Það er búið að stórskaða almannatryggingarnar miðað við það,sem áður var.
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.net
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 7. maí 2018
Íslendingar hafa horfið frá norræna velferðarmódelinu!
Íslendingar hafa horfið frá norræna velferðarmódelinu.Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn eiga stærsta þáttinn í því.Vinstri græn ("Sósialistiskur vinstri flokkur") hjálpa íhaldsflokkunum nú við það verkefni.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 6. maí 2018
Hvað er VG að gera í þessari rikisstjórn?
Svandís heilbrigðisráðherra kom fram í sjónvarpi í gær og lýsti stuðningu við ljósmæður i kjaradeilu þeirra.Hún er áreiðanlega einlæg í því.Hún kvaðst bjartsýn á að deilan mundi leysast fljótlega.En ekki löngu seinna kom annar ráðherra fram og þá kvað við annan tón.Þetta var Bjarni Ben fjármála i síma frá Berlín ( var að taka út dagpeningana sína).Honum lá mikið á að slá á puttana á Svandisi.Hann sagði,að ekki kæmi til greina að fallast á kröfu ljósmæðra,sem þýdd 20% meiri kauphækkun en aðrir fengju.Þessar tvær yfirlýsingar í sjónvarpinu sýndu í hnotskurn hvernig ástandið er í ríkisstjórninni og hver ræður.Ráðherrar VG mega tala og tala og skrifa og skrifa.En þeir ráða engu.Bjarni ræður.Sjálfstæðisflokkurinn ræður öllu í ríkisstjórninn.Það er vegna þess að VG og Framsókn gerðu sömu mistökin við myndun ríkisstjórnarinnar og Björt framtið gerði; sömdu ekki um framgang neinna af stefnumálum sínum.VG og Framsókn var svo mikið kappsmál að komast í stjórn með íhaldinu,að stefnumálin voru látin sitja á hakanum. Hégóminn var aðalatriðið, að fljúga um loftin blá og keyra í fallegum bíl.Þess vegna stjórnar íhaldið öllu í ríkisstjórninni.Sigurður Ingi verður meira að segja að taka upp stefnu Jóns Gunnarssonar últra hægrimanns um veggjöld,ef hann ætlar að gera eitthvað í samgöngumálum.Niðurlægingin er alger! Hvað er VG að gera í þessari rikisstjórn? Framsókn ræður engu heldur.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 2. maí 2018
Mikil ólga í verkalýðshreyfingunni vegna sjálftöku auðstéttar í launamálum
Það sem einkenndi baráttufund verkaýðshreyfingarinnar í Reyjavik 1.mai var mikill baráttuhugur verkalýðsforingjanna,sem töluðu.Það kom skýrt fram,að það er mikil ólga innan verkalýðshreyfngarinnar og óánægja með sjálftöku yfirstéttarinnar i kjaramálum og að láglaunafólk skuli hafa verið skilið eftir i kjaramálum.Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR gagnrýndi þessa þróun harðlega i ræðu á Ingólfstorgi.Hann sagði,að verkafólk hefði ekkert gagn af háum prósentutölum hækkana þegar launin dygðu ekki til mannsæmandi lífs.Stjórnvöld taka allan ávinning bættra kjara til baka í versnandi kjörum á húsnæðismarkaði,minni vaxtabótum,minni barnabótum,minni húsnæðisstuðningi og óhagstæðri stefnu í skattamálum fyrr láglaunafólk.Ragnar Þór boðaði átök strax eftir áramót,ef stjórnvöld breyttu ekki um stefnu.Hann boðaði hörð skæruverkföll og sagði,að allsherjarverkföll heyrðu sögunni til.
Björgvin Guðmundsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)