Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Mánudagur, 19. febrúar 2018
Skera á niður aukasporslur þingmanna um 50%!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 18. febrúar 2018
Greiðslur aldraðra fyrir heilbrigðisþjónustu hækkuðu um 139 millj.kr.
Fyrstu 7 mánuði nýs greiðsluþátttökukerfis í heilbrigðiskerfinu hækkuðu greiðslur aldraðra um 139 milljónir kr.Greiðslurnar áttu að lækka en það varð þveröfugt.Þær hækkuðu.Áður hafði húsnæðisstuðningur við aldraða verið skertur.Stjórnvöld hafa þannig tekið til baka þá hungurlús, sem aldraðir fengu um áramótin 2016/2017.Það er verið að níðast á öldruðum!
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 18. febrúar 2018
VG heldur Sjálfstæðisflokknum við völd!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 17. febrúar 2018
Morgunblaðið tekur upp málefni eldri borgara
Morgunblaðið hefur í dag tekið upp málefni eldri borgara. Á forsíðu blaðsins er frétt undir fyrirsögninni: Eldri borgarar bíða réttlætis.Og á 4.síðu blaðsins eru tvær fréttir um málefni eldri borgara:Lítil virðing borin fyrir eldri kynslóðinni.Viðtal við 73 ja ára eldri borgara,sem þarf að búa heima hjá syni sínum vegna þess hve lífeyrir hennar frá TR og úr lífeyrissjóði er lágur.Og fram kemur,að hún fær enga heimilisuppbót af því hún býr hjá syni sínum.Á síðunni er önnur frétt um viðureign Félags eldri borgara í Rvk við forsætisráðherra.Þar kemur fram,að formaður félagsins hafi skrifað forsætisráðherra og óskað eftir starfshóp um bág kjör aldraðra.Lengi vel svaraði forsætisráðherra ekki bréfi Ellerts ekki fremur en bréfi frá mér upp úr áramótum.En loks svaraði hún og ætlar fyrir náð og miskunn að hitta Ellert sennilega til að tilkynna honum að skipaður verði starfshópur og þá getur málið mallað í starfshóp til vorsins en það var einmitt það sem Katrín hafði tilkynnt áður,að hún ætlaði að athuga málið í vor.Réttlætið á að bíða til vors!.
Ég var formaður kjaranefndar Félags eldri borgara í tæp 10 ár.Ég sendi forsætisráðherra opið bréf í byrjun ársins um nauðsyn þess að bæta kjör þeirra aldraðra,sem verst væru staddir.Aðstoðarmaður forsætisráðherra kvittaði fyrir móttöku bréfsins en engin viðbrögð komu frá ráðherranum Hún þurfti ekki að svara.Vonandi tekur Katrín Jakobsdóttir meira mark á Morgunblaðinu.Ég fagna því að Morgunblaðið taki málefni aldraðra fyrir.Það leiðir í ljós,að blaðinu rennur til rifja hve bág kjör aldraðra eru.Ég tek ofan fyrir Morgunblaðinu.
Björgvin Guðmundsson
Laugardagur, 17. febrúar 2018
Álit starfshóps um kjararáð getur skapað óróa á vinnumarkaði!
Það er misskilningur hjá Katrínu Jabobsdóttur forsætisráðherra,að álit starfshóps um kjararáð stuðli að ró á vinnumarkaði og skapi vinnufrið! Starfshópurinn lagðist gegn því,að óhóflegar launahækkanir stjórnmálamanna,dómara og æðstu embættismanna yrðu afturkallaðar eða skertar.En þessar miklu hækkanir voru í tilvikum greiddar 18 mánuði til baka.ASÍ hafði gert kröfu til þess að þetta yrði afturkallað að fullu eða að hluta til,ef nást ætti friður á vinnumarkaði. Vissir þingmenn tóku undir þetta.Kjararáð ákvað 2016,að laun þingmanna skyldu hækka um 44,3% og verða 1,1 milljón á mánuði fyrir utan aukagreiðslur.Laun forsætisráðherra voru Þá hækkuð í 2.021.825kr. fyrir utan aukagreiðslur og laun annarra ráðherra hækkuð í 1.826.273 kr fyrir utan aukagreiðslur.Laun aðstoðarmanna ráðherra voru hækkuð í 1,2 millj. á mánuði.Laun forseta Íslands voru hækkuð 2.985.000 kr.Dómarar hækkuðu einnig mikið svo og biskup. -Þetta gerðist á sama tíma og lægstu laun í landinu hækkuðu mjög lítið og lífeyrir aldraðra og öryrkja hækkaði aðeins um 12.000 kr. á mánuði eftir skatt!
Starfshópurinn um kjararáð leggur til,að þingmenn,ráðherrar og dómarar verði áfram undir kjararáði en það eru einmitt þeir hópar,sem fengið hafa mestu hækkanirnar samkvæmt úrskurði kjararáðs.Slík vinnubrögð varðandi hækkanir þessara hópa geta því haldið áfram.Starfshópurinn leggur til,að aðrir hópar verði teknir undan kjararáði og samið verði um kjör þeirra eða þau ákveðin af ráðherra. Það er engin trygging fyrir því,að slík breyting tryggi hóflegri launahækkanir en áður.Áhrifa kjararáðs mun gæta lengi og þeir hópar,sem áfram verða undir kjararáði geta haft áhrif á þá aðila sem teknir verða undan kjararáði.
Grófasta yfirlýsing starfshópsins er sú fullyrðing,að hækkanir kjararáðs,upp í 64% hækkun launa sé í samræmi við almenna launaþróun!ASÍ hefur komist að allt annarri niðurstöðu enda hefði engin óánægja verið með störf kjararáðs, ef úrskurðir þess hefðu verið í samræmi við launaþróun.Starfshópurinn segir,að almenn þróun launa hafi náð upp í 48% hækkun.Starfshópurinn kallar mun á milli 48% og 64% ekki merkjanlegan mun!Almennur launamaður telur það mikinn mun.Þetta álit skapar engan frið.Það getur skapað ófrið þegar það bætist við bruðl og óráðsíu þingsins,sem hefur verið að koma í ljós undanfarna daga.
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 15. febrúar 2018
Katrín svarar ekki Ellert!
Ellert B.Schram formaður Félags eldri borgara í Reykjavík skrifaði Katrínu Jakobsdóttur,forsætisráðherra bréf og fór fram á,að kjör þeirra eldri borgara,sem verst væru staddir yrðu lagfærð.Ellert undrast,að Katrín hafi ekki svarað bréfinu.Ég skrifaði Katrínu einnig bréf og fór fram á,að kjör þeirra aldraðra og öryrkja,sem lægstan lífeyri hefðu,yrðu lagfærð.Ég rökstuddi erindi mitt og nefndi kjör þessa fólks eins og þau eru í dag og sýndi fram á,að engin leið væri að lifa af þeim.Katrín svaraði ekki bréfinu.Ég var ekki hissa.Ég er aðeins óbreyttur borgari í dag,eftirlaunamaður,eldri borgari og Katrín svarar ekki slíku fólki.Ég hefði frekar átt von á,að hún mundi svara Ellert.En hún gerir það ekki heldur.Það er vegna þess að hún ætlar ekki að leysa þetta mál, sem borið er fram. Hún ætlar að athuga það í vor!! Sjálfstæðisflokkurinn er á móti því að leysa þennan brýna vanda strax. Sá flokkur vill bíða og sjá hvað gerist í kjaramálum á almennum vinnumarkaði.En ef aldraður eða öryrki getur ekki framfleytt sér í dag hvers vegna á hann þá að bíða eftir að sjá hvað gerist á almennum vinnumarkaði.Menn þurfa að borða Í DAG. Og menn þurfa að fara til læknis í dag,og leysa út lyf í dag.VG ætti að hætta að láta Sjálfstæðisflokkinn ráða ferðinni og ákveða að þetta brýna mál verði leyst strax. Og það þarf enga nefnd í málið.Það þarf framkvæmdir strax.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 12. febrúar 2018
300 þúsund á mánuði reyndist blekking!
Laugardagur, 10. febrúar 2018
Ásmundur var að keyra í 85 vinnudaga sl.ár ( 8 st.á dag).Þingið starfaði í 66 daga!
Rætt var um aksturskostnað og endurgreiðslur Ásmundar Friðrikssonar alþingismanns í laugardagsþætti RÚV,Vikulokunum.Meðal fjölmiðlamanna,sem þar komu fram, var Þórður Snær Júlíusson á Kjarnanum en Kjarninn hefur fjallað um þetta mál.Í Kjarnanum segir m.a.:
Á árinu 2017 voru 66 þingfundardagar á Alþingi. Auk þess voru alls 14 dagar teknir frá undir nefndarfundi. Líklega hafa þingmenn sjaldan, eða aldrei, þurft að mæta jafn lítið í vinnuna og þeir gerðu á árinu 2017. Ástæðan er augljós: Stjórnarmyndunarviðræður, stjórnarslit og kosningar. Og svo auðvitað sú staðreynd, að þingið fer í langt páskafrí, langt jólafrí og ótrúlega langt sumarfrí.
Samt tókst einum þingmanni, Ásmundi Friðrikssyni, að keyra 47.644 kílómetra vegna starfs síns sem alþingismaður á árinu. Ásmundur skráði þá keyrslu niður og fékk kostnað vegna hennar endurgreiddan frá ríkinu. Sú endurgreiðsla nemur 4,6 milljónum króna, eða um 385 þúsund krónum á mánuði. Keyrsla Ásmundar er í sérflokki á meðal þingmanna, enda er hún á við það að hann hafi keyrt hringinn í kringum landið tæplega 36 sinnum.
Ef einhver ætlaði að keyra þessa vegalengd án þess að stöðva þá tæki það viðkomandi 22 sólarhringa að gera það, ef keyrt væri á hámarkshraða á þjóðvegi, eða 90 km/klst. Ef keyrt væri á 50 km/klst. hraða tæki það viðkomandi 33 sólarhringa. Án þess að sofa.
Ef millivegurinn er farinn, og miðað er við, að viðkomandi keyri átta klukkustundir á dag, sem er hefðbundinn vinnudagur, þá tekur það hann 85 átta tíma vinnudaga að keyra þessa vegalengd á 70 km/klst. hraða.
Ásmundur býr á Suðurnesjum og keyrir til vinnu. Frá heimabæ hans, Garði, og til Reykjavíkur, er um 57,5 kílómetra leið. Það má því ætla að Ásmundur hafi keyrt 9.200km.til og frá vinnu miðað við þá þingfundi og nefndarfundi sem haldnir voru í fyrra. Það er tæplega 20 prósent af þeim kílómetrafjölda sem hann fékk endurgreitt fyrir að keyra.
Ásmundur segir að kjördæmi hans sé 700 kílómetra langt og að hann væri að sinna erindum í því flestar helgar. Í því fælist að fara út á meðal fólks, mæta á allskonar uppákomur og svo séu sumrin upptekin af allskonar bæjarhátíðum. Þá hafi tíðar kosningar á undanförnum árum kallað á aukin ferðalög.
Lítið gegnsæi
Þingmenn fá rúmlega 1,1 milljón króna í laun á mánuði auk þess sem margir þeirra fá ýmsar viðbótarsporslur vegna formennsku eða varaformennsku í fastanefndum. Þar er um að ræða 5-15 prósent álag ofan á þingfararkaup. Þingmenn landsbyggðarkjördæma fá síðan 134.041 krónur í húsnæðis- og dvalarkostnað,ef viðkomandi heldur ekki annað heimili á höfuðborgarsvæðinu. Allir þingmenn fá greiddar 30 þúsund krónur á mánuði í fastan ferðakostnað og 40 þúsund krónur í svokallaðan starfskostnað.
Þingmaður eins og Ásmundur, sem býr á Suðurnesjunum og er annar varaformaður í einni nefnd, ætti samkvæmt þessu að fá 1.360 þúsund krónur á mánuði í heildarlaun. Þegar við bætast 385 þúsund krónur vegna aksturskostnaðar eru heildarlaunin um 1.745 þúsund krónur á mánuði.
Til samanburðar má nefna að lágmarkslaun á Íslandi eru 280 þúsund krónur á mánuði.
Þórður og þeir blaðamenn sem voru í Vikulokunum gagnýndu miklar aksturgreiðslur en þeir gagnrýndu mest þá leyndarhyggju,sem ríkir um þessar greiðslur og töldu,að allt ætti að vera uppi á borðinu.Ég er sammála því.
Fimmtudagur, 8. febrúar 2018
Hvers vegna fór VG í þessa ríkisstjórn? Kemur engu fram fyrir þá verst stöddu!
Þegar Björt framtíð ákvað að ganga til stjórnarsamstarfs við Sjálfstæðisflokkinn og Viðreisn benti ég á, að það væri varasamt fyrir lítinn flokk með gerólíka stefnu miðað við hina flokkana að fara í samstarf við þá; raunar ekki gerlegt nema að setja alveg ákveðin skilyrði fyrirfram, sem mundu tryggja framgang einhverra mála. En Björt framtíð var grandalaus og fór í samstarf við íhaldið án þess að setja nokkur skilyrði.Flokkurinn fékk engu framgengt af sínum stefnumálum.Og því fór sem fór.Björt framtíð þurrkaðist út á þingi.Það þýðir ekki að treysta á góðmennsku hjá íhaldinu.En þó stutt sé umliðið frá því þetta gerðist ætlar VG að brenna sig á nákvæmlega þessu sama. VG fer í stjórn með Sjálfstæðisflokknum og Framsókn án þess að setja nokkur skilyrði.Flokkurinn fær engu framgengt af velferðarmálum en þau mál hafa verið helstu áherslumál VG.Ég er ekki að spá því að VG þurrkist út á þingi eins og Björt framtíð en flokkurinn getur tapað miklu fylgi, ef hann fær engu framgengt af sínum stefnumálum.Það er að vísu alltaf talsverður hópur kjósenda sem hrífst af því að VG sé með forsætisáðherrann. En sú hrifning varir ekki lengi ef það leiðir aðeins til þess að Katrín Jakobsdóttir geti ekið um í fallegum bíl en fái engum stefnumálum framgengt!
Í stefnuskrá VG fyrir síðustu kosningar stóð að hækka ætti lífeyri aldraðra og öryrkja og tryggja, að sá lífeyrir færi ekki ekki niður að fátæktarmörkum.Ríkisstjórn VG hefur ekki hækkað lífeyri um eina krónu.Lífeyrir aldraðra og öryrkja er niður við fátæktarmörk. Þeir sem hafa eingöngu lífeyri frá almannatryggingum hafa aðeins 204 þús kr eftir skatt,giftir og í sambúð eða 243 þúsund eftir skatt,einstaklingar.Þetta er við fátæktarmörk.Og því er hér verið að ganga gegn stefnu VG eins og hún birtist kjósendum fyrir kosningar. Hvað kallast þetta. Þegar íhald og framsókn kom svona fram í kosningum voru það kölluð svik á kosningaloforðum.Og það eru líka svikin kosningaloforð þó VG eigi í hlut.
Katrín Jakobsdóttir formaður VG og nú forsætisráðherra var spurð að því á alþingi, hvort ríkisstjórnin ætlaði að gera eitthvað fyrir þá í þjóðfélaginu ,sem verst stæðu,sem minnst mættu sín. Hún svaraði, að það yrði athugað í vor!! Þetta er furðulegt svar.Hvernig getur formaður VG og forsætisráðherra sagt, að athuga eigi í vor hvort unnt sé að aðstoða þá, sem lifa við fátæktarmörk, þ.e. þá sem ekki geta framfleytt sér.Þetta er forkastanlegt svar.Og furðulegt, að formaður stjórnmálaflokks,sem vill kallast róttækur vinstri flokkur, skuli svara á þennan hátt. Það hefði vakið minni undrun, ef formaður íhaldsflokks hefði svarað svona. Þessi spurning vaknar: Hvers vegna fór VG í þessa ríkisstjórn,ef það var ekki til þess að koma fram neinum stefnumálum til hagsbóta ,fyrir þá, sem verst standa og þurfa sannanlega kjarabætur?Var það aðeins til þess að komast í ráðherrastólana; aðeins fyrir hégómann?
Björgvin Guðmundsson
Fimmtudagur, 8. febrúar 2018
Laun hafa stórhækkað; lífeyrir aldraðra og öryrkja við fátæktarmörk!
Leiðrétting á kjörum aldraðra átti að hafa forgang
Það er notað sem rökstuðningur fyrir óhóflegum launahækkunum, sem kjararáð hefur úrskurðað, að laun stjórnmálamanna og embættismanna hafi verð fryst og lækkuð á krepputímanum.Aldraðir og öryrkjar máttu einnig sæta frystingu lífeyris og annarri kjaraskerðingu á krepputímanum en hafa ekki fengið neina leiðréttingu vegna þess eins og embættismenn og stjórnmálamenn.Það hefði verið brýnna að leiðrétta kjör aldraðra og öryrkja vegna fyrri kjaraskerðinga, þar eð lífeyrir þeirra lægstlaunuðu meðal þeirra dugar ekki til framfærslu.Stjórnmálamenn og embættismenn komust hins vegar sæmilega af áður en þeir fengu himinháar launahækkanir, sem kjararáð úrskurðaði þeim.
2015: Launahækkun 14,5%-40%- Hækkun lífeyris 3%!
Á árinu 2015 urðu miklar almennar launahækkanir í þjóðfélaginu.Lágmarkslaun hækkuðu þá um 14,5% frá maí á því ári; grunnskólakennarar fengu 33% launahækkkun á 3 árum og 11% til viðbótar gegn afsali kennsluafsláttar, hjúkrunarfræðingar fengu 23,9% hækkun á 4 árum, BHM fékk 13% launahækkun á 2 árum, Mjólkurfræðingar 18% hækkun, Blaðamenn 16%,Læknar 25-40% hækkun. Þetta er hvergi nærri tæmandi upptalning en aðrar launahækkanir ársins voru á svipuðum nótum og allar þessar hækkanir leiða í ljós hver launaþróun ársins var. En tekið er skýrt fram í lögum, að taka eigi tillit til launaþróunar við ákvörðun á lífeyri aldraðra og öryrkja.Á þessu ári mikilla almennra launahækkana hækkaði lífeyrir aldraðra og öryrkja um 3%; segi og skrifa 3%! Er þetta eitt grófasta dæmið um valdníðslu gagnvart öldruðum og öryrkjum.Hér er skýrt dæmi um það, að lög eru brotin á öldruðum og öryrkjum.Nær allar stéttir fá miklar launahækkanir;lágmarkslaun hækka um 14,5% en önnur laun hækka miklu meira.Samt hækkar lífeyrir aðeins um 3%! Ekki þýðir að vitna í hækkun lífeyris næsta ár á eftir; þá hækkað hann meira en samt á svipuðum nótum og lágmarkslaun.
Stjórnmálamernn og embættismenn fá 21-48%
Á árinu 2016 úrskurðaði kjararáð, að laun þingmanna skyldu hækka um 44% og verða 1,1 milljón á mánuði, laun ráðherra hækka um 35% og verða 1,8 milljón á mánuði og laun forsætisráðherra hækka í rúmar 2 milljónir á mánuði. Þingmenn og ráðherrar fá síðan ýmsar aukasporslur,sem hækka laun þeirra enn.Laun biskups voru hækkuð 2017 um 21% og fóru í 1,5 milljón kr. á mánuði og afturvirk hækkun í 1 ár.Dómarar fengu einnig mikla launahækkun um áramótin 2015/2016.Laun dómara hækkuðu um 31,6%- 48,1%.Laun hæstaréttardómara hækkuðu í 1,7 mill.kr og laun forseta Hæstaréttar í 1,9 millj kr.Laun dómstjórans í Reykjavík hækkuðu í 1,5 milljón kr.Kjararáð ákvað einnig á árinu 2016 að hækka mjög mikið laun háttsettra embættismanna og nefndarformanna.Var hér um að ræða hækkun á bilinu 29-48% og afturvirka launahækkun 18 mánuði aftur í tímann! Kjararáð á að taka tillit til launaþróunar á almennum markaði.Er undarlegt, að ein ríkisstofnun, kjararáð,skuli komast að þeirri niðurstöðu, að launahækkun allt upp í 48,1% sé í samræmi við launaþróun en önnur ríkisstofnun komast að allt annarri niðurstöðu.Samkvæmt lögum á einnig á að taka tillit til launaþróunar við ákvörðun lífeyris.Ríkisvaldið taldi það í samræmi við launaþróun 2015 að hækka lífeyri aðeins um 3% þrátt fyrir alla hinar miklu hækkanir ársins.Og nú telur ríkisvaldið 4,7% hækkun í samræmi við launaþróun þó sú hækkun nái ekki einu sinni hækkun lágmarkslauna og himinháar launahækkanir hafi átt sér stað í þjóðfélaginu, sbr hækkanir,þingmanna,ráðherra,embættismanna,dómara og biskups.
Ég tel það hreina valdníðslu gagnvart öldruðum og öryrkjum að halda lífeyri þeirra niðri við fátæktarmörk á sama tíma og laun í þjóðfelaginu hafa verið hækkuð eins mikið og lýst hefur verið i þessari grein.Er ekki kominn tími til þess að aldraðir og öryrkjar fái að njóta réttlætis og lifeyrir þeirra verði hækkaður svo mjög,að þeir geti lifað mannsæmandi lífi og átt áhyggjulaust ævikvöld.
Björgvin Guðmundsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)